:: sunnudagur, desember 01, 2002 ::
Jæja. Þá er maður bara byrjaður aftur eftir talsvert Gimlé. Búinn að vera að krukka í templatinu, losa mig við lit hins bláa straums og hef tekið upp vinstrilitaða síðu. Annars þykir mér fáránlegt að hrúga litum ofan á hið fyrir fáránlega vinstri/hægri kerfi, enda klæðist ég alltaf bláu og ekki felst nokkur yfirlýsing í því.
Tvennt mun ég þurfa hjálp við og ákalla því lesendur mína (sem eru á bilinu 0-1 einsog stendur). Hvernig breyti ég þessum blá lit undir archives tenglinum mínum, og hversvegna koma ekki íslenskir stafir í tenglana til vinstri? Ég þarf að vísa á framtidina einsog stendur, mun fremur en framtíÐina. Leiðinlegt mál.
:: Atli 20:51 [+] :: ::
...
|