|
:: miðvikudagur, nóvember 30, 2005 ::
Skjárinn.is tók þetta. Skil það ekki. Annars vil ég þakka þeim gríðarlega fjölda fólks sem óskaði mér til hamingju með tilnefninguna - ég elska ykkur.
Annars er kjellinn að leggjast í ritgerðaskrif og prófaundirbúning. Ætli það þýði ekki tíðari færslur frekar en hitt.
E.S. Fjöldi fólks sem óskaði mér til hamingju var einhversstaðar á bilinu 0-1.
:: Atli 10:19 [+] :: ::
...
:: laugardagur, nóvember 26, 2005 ::
Andri Jóhannesson og vinur hans eru mestu fávitar á Íslandi. Offísjalt.
Og: Rjóminn.is er tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna!
:: Atli 18:37 [+] :: ::
...
Tvennt tengt ferð minni til Frakklands:
Á heimasíðu Röskvu má lesa grein eftir mig um tilgang fararinnar. Smelltu hér til að lesa hana.
Öllu mikilvægara: Ég segi frá því í greininni að Taciana Khoma, 21 árs stúdent við háskólann BSEU í Hvíta-Rússlandi hafi verið kjörin til stjórnarsetu í ESIB og hafi með því mögulega hætt lífi sínu, enda er spilling innan háskólasamfélagsins á þessum slóðum ansi víðtæk og róttækni meðal stúdenta illa liðin. Nú er svo komið að BSEU hefur tilkynnt Taciönu að henni verði vísað úr háskólanum og af stúdentagörðunum. Ég hvet alla lesendur keipdúnksins til þess að mótmæla þessu með því að skrá sig á undirskriftalista sem StL, samtök stúdenta í Noregi, standa fyrir. Listinn er hér: http://www.stlweb.no/signatures.asp?pagenr=2.
:: Atli 13:54 [+] :: ::
...
:: fimmtudagur, nóvember 24, 2005 ::
Er það ekki dálítið kaldhæðnislegt að Gísli Marteinn nefni „lélegt sjónvarpsefni“ sem eitt af því sem fari einna mest í taugarnar á honum í samtali við Málið í dag?
:: Atli 15:14 [+] :: ::
...
:: miðvikudagur, nóvember 23, 2005 ::
Þeir sem hafa fengið sér kaffi á kaffistofunni á Þjóðarbókhlöðunni vita að bollarnir eru alls ekki stórir, þótt þeir kosti heilar hundrað krónur. Þetta hefur ekki verið stórkostlegt vandamál hingað til, enda er ábót innifalin í verðinu.
Eða þannig var það alltaf.
Þegar ég var orðinn nokkuð lúinn eftir að hafa kynnt mér hinsegin-lestur* á Dauðanum í Feneyjum eftir þýzka rithöfundinn Thomas Mann, þá rölti ég niður tröppurnar á Þjóðarbókhlöðunni, inn á kaffistofu, og spurði hvað kanilsnúðarnir kostuðu: Hundrað krónur, því þeir voru víst óvenjulega litlir þennan grádumbungslega nóvemberdag. „Ágætt“, hugsaði ég, „ég get sætt mig við tvöhundruð krónur fyrir kanilsnúð og tvo kaffibolla.“ Ég fylli út kennslukönnunina á meðan ég gæði mér á snúðnum og skola honum niður með kaffi sem gæti satt best að segja bragðast betur, og þetta segir ég þótt ég sé lítill kaffigæðingur. Ég stend því næst á fætur, rölti yfir að kaffikönnunni og dæli. „Er þetta ábót?“ spyr afgreiðslumaðurinn á sjarmerandi bjagaðri íslensku. „Já“, svara ég keikur að bragði. „Það er ekki ábót“, svarar hann þá og bendir mér á skilti til hliðar við könnuna. „Ha!?“ spyr ég í forundran, „hvenær gerðist það?“ Afgreiðslukona, að öllum líkindum yfirmaður afgreiðslumannsins, grípur inní: „Það eru einar þrjár vikur síðan.“ „Ja hérna“, hugsa ég og hugsunin sleppur sennilega útum annað munnvikið. „Og hvað á ég þá að gera við kaffið?“, spyr ég hneykslaður. „Ooo... ætli við sleppum þér ekki í þetta sinn“, svaraði þá afgreiðslukonan á óbjagaðri íslensku.
Þótt þakklátur sé fyrir góðvild afgreiðslukonunnar þá markaði þessi viðburður endalok viðskipta minna við kaffistofuna á Þjóðarbókhlöðunni, en hún er dýr og þar er vont blaðaúrval. Auk þess er það torkennilegt hvernig maturinn bragðast alltaf miklu verr en hann lítur út fyrir að gera á bakvið glerskjöldinn.
* Hinsegin-lestur er tiltekinn bókmenntalestur sem miðar að því að draga fram samkynhneigð einkenni á texta, eða koma sýn hins samkynhneigða að í túlkun og greiningu textans. Hvað varðar Dauðann í Feneyjum sérstaklega, þá er þar ýmsum vísunum til menningar samkynhneigðra í Þýskalandi við upphaf tuttugustu aldarinnar dreift um textann allan, sé mark takandi á greininni „Thomas Mann: A Gay Perspective“, en hún er áhugaverð lesning og merkilega auðveld miðað við þann torftexta sem margir bókmenntafræðingar aðhyllast.
:: Atli 12:26 [+] :: ::
...
:: fimmtudagur, nóvember 17, 2005 ::
Eins gott að ég ákvað að labba yfir Tjörnina í gærkvöldi. Það hefði verið of seint í dag.
:: Atli 21:23 [+] :: ::
...
:: miðvikudagur, nóvember 16, 2005 ::
Hvarflaði ekki að neinum að NFS (Nýja fréttastöðin) verður ekki alltaf ný? Mun nafnið breytast í FS eftir ár, og í GFS eftir tíu ár?
:: Atli 19:12 [+] :: ::
...
:: laugardagur, nóvember 05, 2005 ::
Hey! Ég veit! Ég ætla að opna fatabúð sem selur notuð föt, íslenska hönnun og fylgihluti og nefna hana Halti hlébarðinn/Limping Leopard!
E.S. Ég er farinn til Frakklands. Kem aftur eftir viku.
:: Atli 22:28 [+] :: ::
...
:: föstudagur, nóvember 04, 2005 ::
Ótrúlegt! Það er þetta sem ég er búinn að vera að tala um að senda plötufyrirtækjum bréf út af! Fyrir þá sem nenna ekki að smella á tengilinn þá mun Merge Records semsagt láta lykilorð fylgja með vínylútgáfum sínum í framtíðinni sem gerir hlustandanum kleift að sækja plötuna á Netið. Þannig getur viðkomandi bæði átt plötuna á... plötu og hins vegar haft hana með sér hvert á land sem er í iPoddnum sínum. Snilld! Lifi vínyllinn!
:: Atli 14:00 [+] :: ::
...
:: þriðjudagur, nóvember 01, 2005 ::
Rokk!
Thanks for shopping at Insound! This email confirms that your order was received. When your order ships (usually within 24 hours), you'll receive another email confirming ship date and time.
*********************************************************** ORDER INFORMATION ***********************************************************
They Threw Us All in a Trench and Stuck a Monument On Top - Liars LP Beaches and Canyons - Black Dice 2xLP The Tired Sounds of Stars of the Lid - Stars of the Lid 2xCD The Creek Drank the Cradle - Iron and Wine LP Apple O' - Deerhoof LP Grace Days - I Am Robot and Proud CD I'm Wide Awake, It's Morning - Bright Eyes LP Entertainment! - Gang of Four LP Push Barman To Open Old Wounds - Belle & Sebastian 3xLP Nouvelle Vague - Nouvelle Vague CD In Case We Die - Architecture in Helsinki CD Beauty and the Beats - Edan LP Twin Cinema - The New Pornographers LP Multiples - Keith Fullerton Whitman CD Apologies to the Queen Mary - Wolf Parade LP Belle and Sebastian: Just a Modern Rock Story - Paul Whitelaw BOOK Kompakt Total 6 - Various Artists 2xCD Love Kraft - Super Furry Animals CD The Mouse & The Mask - DANGERDOOM LP Just Another Diamond Day - Vashti Bunyan LP You Could Have it so Much Better - Franz Ferdinand LP Feels PRE-ORDER - The Animal Collective 2xLP Shamelessly Exciting - Jason Forrest LP Campfire Headphase - Boards of Canada LP He Has Left Us Alone But Shafts Of Light... - A Silver Mt. Zion LP
Sjáumst á næsta ári.
:: Atli 11:46 [+] :: ::
...
|