|
:: þriðjudagur, apríl 29, 2008 ::
HVAÐ Á MAÐUR AÐ GERA?
Þetta er allt svo mikið drasl.
Samfylkingin er búin að missa allan trúverðugleika; Fagra Ísland var bara bæklingur og annar hver maður mærir skólagjöld. Aðallega kæmi mér aldrei til hugar að styðja flokk sem eyðir einum og hálfum milljarði í varnarmálaráðuneyti, til að verjast hverju? Og hvað varð um að taka Ísland af lista hinna staðföstu?
Sjálfstæðisflokkurinn er ennþá einhverskonar misskilin auðmannaklíka sem heldur að einkavæðing sé svarið við öllu, og að ef þessum ríku gangi vel þá gangi þjóðinni vel. Þetta er tækifærissinnað pakk, spilltir embættismenn (eins og hefur sýnt sig trekk í trekk) sem hafa engar hugsjónir og bara alltof fullorðins og hallærislegt dæmi.
Frjálslyndir eru alltaf sömu djöfuls rasistarnir - rasistinn alræmdi Viðar Helgi kom svo feitt upp um sig í síðustu viku þrátt fyrir að hafa reynt að þvo af sér stimpilinn, t.d. með því að koma fram á andrasistatónleikunum í Austurbæ í vetur. Og svo er þetta eitthvað svo illa upplýst og að því er virðist hei**kt lið.
Framsókn er flokkur steingervinga, 19. aldar flokkur handa liði sem er í pólitík út af því að það heldur upp á Einar Ben og Hannes Hafstein en gat ekki meikað það í Sjálfstæðisflokknum. Álíka áreiðanlegt og krónan. Fyrir hvað stendur þessi flokkur eiginlega? Bændur?
Vinstri grænir eru bara svo ótrúlega íhaldssamir. Kommon - að maður veikist af því að borða útlenskan mat? Auðvitað viljum við láta lækka tolla! Ég vil láta afnema alla tolla og öll aðflutningsgjöld. Núna. Og af hverju þessi byggðastefna alltaf? Og hvað hafið þið á móti Evrópusambandinu?
:: Atli 19:16 [+] :: ::
...
:: laugardagur, apríl 26, 2008 ::
SKOÐUN MÍN Á MÁLI LÁRU ÓMARSDÓTTUR
Ég er ekki að segja að það sem Lára Ómarsdóttir gerði hafi verið rétt. En svona er þetta bara. Það er ótrúlega barnalegt að halda að fjölmiðlar birti yfirleitt „rétta“ mynd af atburðum. Það er barnalegt að halda að þeir séu þess megnugir. Hversu oft ætli menn séu beðnir um að takast aftur í hendur, að rétta ávísunina aftur, að endurtaka niðurlag ræðunnar? Það er enginn eðlismunur á því og því að biðja einhvern um að kasta eggi rétt á meðan bein útsending stendur yfir - að því gefnu að það hafi verið nokkuð um eggjakast hvort sem var.
Veruleikinn eins og hann birtist okkur á skjánum er ekki veruleikinn „eins og hann er.“ Horfumst í augu við það í stað þess að fetta fingur út í vinnubrögð Láru. Hún er bara að útbúa það sem fólk vill sjá. Hún er bara að vinna vinnuna sína.
:: Atli 00:02 [+] :: ::
...
|