|
:: fimmtudagur, janúar 02, 2003 ::
Úff.
Þóttist þurfa að byrja upp á nýtt, en svo er liðinn mánuður og ekkert gerst. Eða bíðum við; það hefur fullt af dóti gerst, en ekkert hefur verið skrásett hér á þessum miðli. Förum yfir desembermánuð:
Ég fór í próf. Það gekk ljómandi vel. Svo komu jól sem ég naut. Svo áttum ég og Svala árs afmæli. Svo komu áramót sem voru þau skemmtilegustu í minningunni.
Jólagjafir voru á þessa leið: Peysa, blá með japönskum táknum. Apparat diskurinn. Bent & 7Berg diskurinn. Ríó Tríó diskurinn. (Var þó skipt í One Day I'll Be On Time með Album Leaf.) Einhvern kokkteil-músík disk. Sixpensara. Kvikmyndina Sloppbúr. Hljóðsnælduna Endurkoma Lóanna. Alkemistann eftir Paulo Brasilíumann. Grafarþögn eftir Arnald Indriðason. Uppblásna inniskó. Nærbuxur. Og fokking rafmagnsgítar. Meira man ég ekki í bili.
Varðandi gítarinn þá kann ég ekkert á gítar en finnst skítgaman að spila á svoleiðis. Ég verð orðinn fær í febrúar.
Áramótin komu á óvart. Fínn matur heima og svo brenna og skaup (sem var gott) og út að sprengja. Síðan freyðivín, strákarnir + kærasta komu í heimsókn og við fengum okkur meira freyðivín og einn Hvítrússa áður en haldið var til Karls Erlings Oddasonar sem hélt úti stórkostlega skemmtilegu partíi.
\\
Fordómar:
Bent & 7Berg; Góða ferð
15 lög. Einsog fram kemur eru þetta fordómar, þ.e.a.s. diskurinn hefur ekki enn verið tekinn vandlega til hlustunar. En við rennsli er þetta einfalt mál. Má ég sparka? er gott lag, svo taka við sex léleg lög. Liggedí lagið er frekar gott. Ég hef gaman að Drykkju, svo kemur besta lagið: Tveir eins?, sem er með eitthvað geðveikt söngsampl og heví töff trommum. Svo koma þrjú rosalega þung og frekar tilraunakennd lög, sem ég er mjög ánægður með. En á endanum er þetta bara hiphopp, og að mínu mati getur það aldrei orðið eitthvað svakalegt. 5/10 er hæfandi einkunn.
The Album Leaf: One Day I'll Be On Time
Fáránlega góðar pælingar. Gítar og stöku trommur + rhodes og smá elektróník, seiðandi og rómantískt. Unaður í hlýju herbergi. Ekkert sem er slappt. Uppáhaldið í augnablikinu. 8-9/10.
Apparat Organ Quartet
Geðveik á tónleikum. Jafngeðveik á plötu. Analog-metall, en ballöður inná milli. Grípandi og slammvænt. Rosa flott sánd. 8/10.
\\
Ég er að pæla í að vanda mig við næstu dóma. Enda voru þetta bara fordómar.
Til hvers að blogga?
Kannski ég haldi áfram, kannski ekki.
:: Atli 16:42 [+] :: ::
...
|