:: keipdúnkur atla bollasonar ::

:: velkomin :: bollason[hja]gmail.com :: plotusafn (gamalt) ::
[::..tenglar..::]
:: bolladóttir [>]
:: brissó [>]
:: tobbi túkall [>]
:: pjotr-beikon [>]
:: oddur [>]
:: halastjarnan erla [>]
:: steini teague [>]
:: kalli (aka sverrir) [>]
:: bragi málefnalegi [>]
:: heklurnar [>]
:: sandra sello [>]
:: dagga [>]
:: orri tomasson [>]
:: atli vidar [>]
:: doddeh [>]
:: doktor sindri [>]
:: daily photo [>]
:: ragga sturlada [>]
:: baldur.april.is [>]
:: alma [>]
:: stígur lýgur [>]
:: krummi [>]
:: heilagur hrafn [>]
:: dagar puka [>]
:: the big jko [>]
:: sólveig helgabarn [>]
:: kpt. kata litla [>]
:: sólberg [>]
:: steindór [>]
:: kommóðan [>]
:: biggi [>]
:: frikki [>]
:: herra garðar [>]
:: steinþór helgi [>]
[::..gamalt..::]
12/01/2002 - 01/01/2003 01/01/2003 - 02/01/2003 03/01/2003 - 04/01/2003 04/01/2003 - 05/01/2003 05/01/2003 - 06/01/2003 06/01/2003 - 07/01/2003 07/01/2003 - 08/01/2003 08/01/2003 - 09/01/2003 09/01/2003 - 10/01/2003 10/01/2003 - 11/01/2003 11/01/2003 - 12/01/2003 12/01/2003 - 01/01/2004 01/01/2004 - 02/01/2004 02/01/2004 - 03/01/2004 03/01/2004 - 04/01/2004 04/01/2004 - 05/01/2004 05/01/2004 - 06/01/2004 06/01/2004 - 07/01/2004 07/01/2004 - 08/01/2004 08/01/2004 - 09/01/2004 09/01/2004 - 10/01/2004 10/01/2004 - 11/01/2004 11/01/2004 - 12/01/2004 12/01/2004 - 01/01/2005 01/01/2005 - 02/01/2005 02/01/2005 - 03/01/2005 03/01/2005 - 04/01/2005 04/01/2005 - 05/01/2005 05/01/2005 - 06/01/2005 06/01/2005 - 07/01/2005 07/01/2005 - 08/01/2005 08/01/2005 - 09/01/2005 09/01/2005 - 10/01/2005 10/01/2005 - 11/01/2005 11/01/2005 - 12/01/2005 12/01/2005 - 01/01/2006 01/01/2006 - 02/01/2006 02/01/2006 - 03/01/2006 03/01/2006 - 04/01/2006 04/01/2006 - 05/01/2006 05/01/2006 - 06/01/2006 06/01/2006 - 07/01/2006 11/01/2006 - 12/01/2006 12/01/2006 - 01/01/2007 01/01/2007 - 02/01/2007 02/01/2007 - 03/01/2007 03/01/2007 - 04/01/2007 04/01/2007 - 05/01/2007 05/01/2007 - 06/01/2007 06/01/2007 - 07/01/2007 07/01/2007 - 08/01/2007 10/01/2007 - 11/01/2007 11/01/2007 - 12/01/2007 12/01/2007 - 01/01/2008 01/01/2008 - 02/01/2008 02/01/2008 - 03/01/2008 03/01/2008 - 04/01/2008 04/01/2008 - 05/01/2008 05/01/2008 - 06/01/2008 06/01/2008 - 07/01/2008 08/01/2008 - 09/01/2008 09/01/2008 - 10/01/2008 01/01/2009 - 02/01/2009 02/01/2009 - 03/01/2009 04/01/2009 - 05/01/2009 12/01/2009 - 01/01/2010

:: fimmtudagur, mars 27, 2008 ::

BLOGG ER BARA BLOGG

Fjölmiðlar hafa tekið mjög miklum breytingum á undanförnum árum. Rekstur dagblaða tók að þyngjast þegar upplýsingar á Netinu urðu betri og aðgengilegri. Í kjölfarið spratt upp fjöldi fríblaða sem sumir telja að séu komin langt á leið með að útrýma hefðbundnum áskriftarblöðum. Enn má þó sjá nokkurn gæðamun á umbúnaði og umfangi slíkra blaða í samanburði við fríblöðin þótt nú sé tekið að draga nokkuð saman.

***

Einhverjar leiðir hafa fjölmiðlar því þurft að fara til að nýta Netið í sína þágu og sú sem hefur kannski verið hvað mest áberandi og haft hvað mest áhrif er að taka bloggsíður í þjónustu sína með einum eða öðrum hætti. Bloggið spratt upp í kringum aldamótin og er eins og flestir vita eins konar dagbók á Netinu. Sá munur er þó vitanlega á dagbók og bloggi að bloggið er opinbert; hver sem er getur lesið það. Skrifin verða fyrir vikið eins konar blanda af persónulegum texta og texta með almenna skírskotun. Bloggarar sem skrifuðu frá Afganistan og Írak þegar innrás Bandaríkjamanna hófst (og raunar enn) þóttu t.a.m. birta umheiminum nokkuð aðra sýn heldur en þá sem kom fram í þekktari og hefðbundnari fjölmiðlum. Bloggið myndaði því eins konar gagnrýnið samtal við aðra fjölmiðla og þótti geta dregið úr ægivaldi hins prentaða orðs, sem er vitaskuld dýrt og ekki á allra færi. Með blogginu fékk hver sem vildi rödd.

***

Ákveðnum bloggurum tókst að skara fram úr og hljóta umtalsverðan lestur og fyrir vikið nokkuð vægi. Fjölmiðlarnir sem fyrir voru gerðu sér grein fyrir þessu og einhverjir ákváðu að umfaðma bloggið, til dæmis vinsælasti vefurinn hér á landi; mbl.is. Nú er það svo að hver sem er getur bloggað við hvaða frétt sem er og ummæli viðkomandi birtast hér um bil í sama rými og fréttin sjálf. Mörkin þarna á milli eru óskýrari en áður var.

***

Nú hafa hins vegar runnið á marga tvær grímur. Er þetta virkilega góð hugmynd? Þessar vangaveltur hafa alveg óvart verið eins og rauður þráður gegnum síðustu þrjú tölublöð Stúdentablaðsins, og það þarf kannski ekki að koma á óvart – flest ungt fólk les blogg og flest höfum við skoðun á þeim. Nú er það staðreynd að spjallborð og blogg geta verið, eins og Egill Helgason orðaði það, „rotþrær“ netheima, þ.e. viðbjóðslegir pyttir þar sem alls kyns ærumeiðingar líðast. Slík skrif dæma sig yfirleitt sjálf en ég verð að játa að stundum blöskrar mér magnið og harkan í slíkum skrifum. Mestöll umræða á Netinu er fyrir eina sök eða aðra mjög fljót að falla niður á gríðarlega lágt plan og það væri fróðlegt að sjá fyrir sér hvernig raunveruleg samskipti væru ef þau væru eins og á blogginu (eins og vefsíðan CollegeHumor.com hefur raunar gert, sjá „Internet Commenter Business Meeting“).

***

Þetta er kannski hrokafull skoðun, en mér finnast níutíu prósent þess sem er skrifað á moggablogginu vera drasl. Þar eru illa rökstuddar skoðanir (eða alls ekki rökstuddar) og vondar endursagnir á fréttum. Þetta er eins og kaffistofuspjall á vinnustað þar sem næstum allir eru fordómafullir, athyglissjúkir, mér liggur við að segja heimskir. Þetta er í raun verra því þarna er engin krafa gerð um að hlusta á viðmælandann. Allir fá að halda einræðu án eiginlegra viðbragða. Þú segir hvað sem þú vilt og enginn andmælir þér.

***

Ég hef verið með blogg frá 2002 þó að bloggtíðnin hafi sveiflast mjög og stundum liðið mánuðir milli færslna. Ég veit að gæði þess sem þar hefur verið ritað eru æði misjöfn og sumt er mjög auðvelt að skjóta niður - annað ekki. Ég er ekki einu sinni alltaf sammála því sem ég hef skrifað á bloggið mitt, jafnvel þó að nafnið mitt komi fyrir í titlinum sjálfum. Bloggarar eru „í karakter“ þegar þeir blogga, það er einhvers lags söguhöfundur að blogginu, einhver „þriðji aðili“ sem stendur milli þess sem á bloggið í raun og veru og textans sem þar er. Og af þessum sökum gildir nokkuð annað um blogg heldur en um blaðagreinar eða fréttir. Blogg er alltaf pistill; þar er fært í stílinn, það er á mörkum þess að vera skáldskapur og eitthvað annað, og það gerir ekki tilkall til þess að spegla veruleikann „eins og hann er.“ Blogg er skoðun, því miður oftast illa eða órökstudd, en stundum vel ígrunduð og gáfuleg. Það á ekki að taka því sem neinu öðru.

***

Það verður því að segjast að það er mjög sorglegt að héraðsdómur Reykjavíkur hafi sakfellt bloggarann Gauk Úlfarsson fyrir þau ummæli sín að Ómar R. Valdimarsson væri „aðal rasisti bloggheima“ í kjölfar þess sem Gauki virtist ósæmileg árás á einn frambjóðenda Vinstri-Grænna í alþingiskosningunum, Paul Nikolov. Gaukur sagði Ómar „svæsnari“ en aðra rasista og bað fólk um að andmæla svo „útlendinga hatur hans [stæði] ekki óhaggað.“ Gaukur þarf samkvæmt úrskurði héraðsdóms að greiða Ómari 300.000 krónur í miskabætur og 500.000 vegna málskostnaðar.

***

Allir sem hafa lagt leið sína um bloggheima eða í Barnaland vita að þessi ummæli eru með því saklausara sem gengur og gerist. Eins og bloggarinn og femínistinn róttæki Sóley Tómasdóttir benti á, þá gæti hún eflaust sest í helgan stein úr þessu í ljósi allra þeirra ósmekklegu athugasemda sem hún hefur fengið í eigið athugasemdakerfi og á öðrum bloggum. Og hún er síður en svo ein á báti. Blogg lútir ekki sömu lögmálum og fréttamiðlar og það á ekki að gera það. Það er augljóst að ummæli Gauks verða til í ákveðnu samhengi og að þau eru gildisdómur; þau eru hans persónulega skoðun (eða öllu heldur skoðun blogghöfundarins) og ólíkt því sem oft er á bloggum þá er hún meira að segja rökstudd. Blogg varð til í þeim tilgangi að sýna að það eru aðrar leiðir færar en þær sem við þekkjum úr hefðbundnum fjölmiðlum og ef lög um hefðbundna fjölmiðla eru yfirfærð á bloggformið verður úr skrítinn bræðingur sem er ekki í takt við eðli bloggsins né væntingar fólks til þess. Höfum hugfast að það voru ekki bloggararnir sem báðu um að færslur þeirra yrðu endurprentaðar í blöðum – án þeirra samþykkis – eða að þær yrðu settar á forsíðu vefsvæða dagblaðanna með tenglum. Væri ekki alveg eins hægt að ganga á ritstjóra eða eiganda vefsvæðisins blog.is eða mbl.is?

***

Ég vona innilega að hæstiréttur snúi þessum dómi við. Leyfum okkur ekki að misnota skaðabótarétt eins og fjöldamörg dæmi eru um frá Bandaríkjunum. Ég veit að það er ekki æskilegt að hvað sem er fái að vaða uppi á bloggum, en þegar annar hver maður skammast yfir múslimum sem þola ekki að sjá Múhammeð á mynd í krafti tjáningarfrelsisins þýðir ekki að vilja setja því skorður heima fyrir með sama hætti og héraðsdómur hefur nú gert. Bloggið getur stundum dregið eitthvað fram í dagsljósið sem öðrum miðlum yfirsást, eða það sem mikilvægara er, það getur sagt það sem prent- eða ljósvakamiðlarnir þorðu ekki í pólitískt réttsýnum tepruskap sínum að segja. Blogg er bara blogg og ég held við ættum að halda því þannig.

Færslan var leiðari marsblaðs Stúdentablaðsins

:: Atli 17:26 [+] :: ::
...
:: fimmtudagur, mars 20, 2008 ::
Ein pæling um tónlistarverðlaunin:

Bergur Ebbi (Sprengjuhöllinni) er útnefndur besti textahöfundurinn, Högni (Hjaltalín) er útnefndur besti lagahöfundurinn, Björk er besta söngkonan og besti flytjandinn, Páll Óskar besti söngvarinn og „Verum í sambandi“ er besta lag ársins. Samt vinna Mugison, Megas og Ólöf Arnalds fyrir plötur ársins. Þessar plötur hafa væntanlega ekki bestu lögin, ekki bestu textana og ekki besta flutninginn ef marka má niðurstöður úr hinum flokkunum. Hvað gerir þessar plötur þá bestar? Ætli dómnefndin hafi eitthvað pælt í því?

:: Atli 16:19 [+] :: ::
...
:: mánudagur, mars 17, 2008 ::
SJITT!
Evran er komin í 120 krónur. Danska krónan í 16. Bandaríkjadalur í 75. Sterlingspund í 151. Ég finn lykt af verðhækkunum og almennu skölli.

:: Atli 12:27 [+] :: ::
...
:: þriðjudagur, mars 04, 2008 ::
Ég var í Kaupmannahöfn um helgina. Höllin spilaði fyrir fullu húsi á laugardagskvöldinu en að öllu öðru leyti var þetta hreinræktað afslappelsi. Og þetta var svo gaman. Svo gaman. Gaman.

Ég át fimm keböb, lét tríta mig á veitingastöðum á kvöldin, baðaði mig í bjór, hékk á kaffihúsum. Ég fór ekkert svo mikið í búðir, pikkaði upp eina skyrtu og bindi, fjórar plötur (Da Capo með Love, Lust Lust Lust með Raveonettes, 23 með Blonde Redhead og Alive 2007 með Daft Punk) og eitt smásagnasafn eftir Ian McEwan. Já, og ef þið eruð ekki búin að sjá/lesa Friðþægingu myndi ég drífa í hvoru tveggja. Virkilega vönduð verk sem spyrja áleitinna spurninga um skáldskap versus sannleika en hafa jafnframt til að bera stórbrotna og átakanlega sögu. Ég saknaði ýmiss úr öðrum hluta bókarinnar í myndinni auk þess sem hálfgert glæpaplott verður útundan á skjánum (og eyðileggur eflaust nokkra spennu fyrir þeim sem byrja á mynd áður en bókin er lesin) en heilt yfir er myndin ótrúlega góð. Tónlistin er líka svöl, rennur skemmtilega saman við umhverfishljóðin.

En þessi danska marínering þýðir auðvitað bara að nú þarf ég að hafa mig enn frekar við svo allt gangi upp í þessari viku. Og það er alveg meira en að segja það. En þetta reddast. Það gerir það alltaf.

Þakka öllum sem sóttu tónleikana og grínuðu með okkur, það var gaman að hitta allt þetta lið, suma hafði maður ekki séð lengi en minntu rækilega á sig. Frú Kaupinhafn á þó sjálf mest kredit skilið. Hún er æði. Meiraðsegja Högni var farinn að viðurkenna það.

:: Atli 00:40 [+] :: ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?
:: gestir ::
Weblog Commenting by HaloScan.com