|
:: mánudagur, júlí 19, 2004 ::
Þetta er náttúrulega bara dónalegt. Svo ég haldi virðingu ykkar, kæru lesendur, þá afsaka ég slaka bloggun og lýsi því hér opinberlega yfir að ég sé kominn í sumarfrí. Ekkert vera að gera ykkur ferðir hingað fyrr en í haust - hér verður væntanlega ekkert að sjá.
Eitt atriði ætla ég þó að minnast á. Hversu skrítið er það að Leó fái sérstakar þakkir innan í Isidor kóverinu, en ekki einu orði minnst á mig, einn dyggasta aðdáandann? Hmmm.
:: Atli 14:40 [+] :: ::
...
:: mánudagur, júlí 05, 2004 ::
Í fyrramálið legg ég af stað til Akureyrar ásamt öllum starfsmönnum Jafningjafræðslunnar. Þar munu leiðir skiljast og minn bíll (einn af fjórum) aka Vestfirðina næstu daga til þess að kynna unga íbúa á þeim slóðum fyrir lífinu og þeim hættum sem því kunna að fylgja. Það verður vonandi mjög skemmtilegt. Ég sný aftur á föstudaginn og verð sennilega úrvinda af þreytu. Það verður fínt.
•••
Fimmti fundur Sona Skallagríms fór fram sl. föstudag heima hjá Oddi. Hann var að vonum mjög skemmtilegur enda sjaldan leiðinlegt að vera í samneyti við gáfumenni. Þar var allt frá tónlist til jafnréttis rætt og menn voru gjarnan ósammála, sem betur fer, annars hefði nú ekki verið um neitt að ræða.
•••
Á laugardaginn var mér (og fleirum) boðið til mötunar á Óðinsgötu, í híbýli Rutar og Elsu, en Bryndís mun gegna hlutverki Elsu næstu vikur. Það var skemmtilegt, skemmtileg íbúð og flottir krakkar. Þaðan var haldið á hinn rólega en þægilega kofa Tómasar frænda, en við hristum verulega upp í fólkinu þar með dansi og háreisti. Sennilega fyrsta og seinasta skipti sem ég heyri Chariots of Fire með Vangelis á bar.
•••
Ef einhver lumar á góðu djobbi handa góðum manni í lok júlí og ágúst - þá er ég maðurinn sem þið eruð að leita að.
:: Atli 01:16 [+] :: ::
...
|