:: föstudagur, júní 22, 2007 ::
Kæru vinir. Afsakið bloggleysið. Ég er ekki með Net heima hjá mér á Njálsgötunni og þegar ég er í vinnunni þá er ég yfirleitt að... tja... vinna.
Ég útskrifaðist úr bókmenntafræði á laugardaginn og mamma og pabbi héldu dúndurveislu mér til heiðurs í Bjarmalandinu. Það var sjúklega gaman, fólk hélt út að vera utandyra ekki síst vegna fjölda flottra skemmtiatriða. Undir lokin var þetta farið að líkjast Kaffibarnum (mínus þak). Ég vil þakka öllum sem komu og eða hugsuðu til mín, þetta var frábær dagur, ykkar vegna. Kannski ég pósti myndum ef einhverjar eru.
Sprengjuhöllin hyggst taka upp plötu í júlí/ágúst og við erum farnir að æfa með markvissum hætti undir þau sessjón.
Svo nýt ég bara lífsins, lít í bækur (enda nóg af þeim ólesnum að útskriftinni lokinni), og skrifa í blöð.
Meira seinna, þegar ég er innblásinn.
:: Atli 09:50 [+] :: ::
...
|