Nú er ég búinn að fá einhvern póst tvisvar í dag þar sem ég er beðinn um að sniðganga Shell og N1 til að koma af stað verðstríði til að halda bensínverði niðri. Nú er ég allur fyrir að sniðganga stórfyrirtæki, en mér finnst fínt að bensínverðið hækki svolítið duglega. Það fær fólk aðeins til að slaka á í bílasturluninni og kannski verður loksins hægt að leggja grunn að alvöru almenningssamgöngum hérna.
:: Atli 12:32 [+] :: ::
...
:: þriðjudagur, júní 24, 2008 ::
Ég hef heyrt lagið „Bahama“ með Ingó og Veðurguðunum tvisvar. Mér finnst þetta gott lag.
:: Atli 18:42 [+] :: ::
...
Þraukið fyrstu mínútuna, þið sjáið ekki eftir því. Sjálfum finnst mér magnaðast hvað vítt skot af skanna og hljóðnema getur haft sterk tilfinningaleg áhrif (3:05).
:: Atli 14:17 [+] :: ::
...