:: keipdúnkur atla bollasonar :: | |
:: velkomin :: bollason[hja]gmail.com :: plotusafn (gamalt) :: | |
:: mánudagur, október 27, 2003 :: Já það var bara sama gamla ruglið um helgina. Föstudagurinn var alveg príma, við Orri skelltum okkur heim til Laufeyjar, vinkonu hans Odds og fyrrum hjákonu Leós. Hún er nokkuð lúnkin týpa og þar sátum við og fylgdumst með síðari hluta Idol yfir bjór og spjalli við hressa MRinga, sem voru okkur þó ókunnugir. Rosa sætar stelpur þarna í MR. Oddur var þegar nokuð ölvi þegar við mættum, enda vissi hann vel, einsog við allir að stefnan yrði síðar um kvöldið tekin heim til ofurkappans Balla Kri, en hann stóð fyrir VÍ jet-set partíi. Á leið okkar þangað rákumst við á busa í MH, en ég fullyrði að þetta séu svölustu busar sem skólinn hefur tekið á móti síðan ég valsaði inn í grænum buxum og blárri Adidas peysu, með lubba og týpugleraugu. Einn þeirra minnti á einhverskonar bræðing Jimi Hendrix, Albert Hammond Jr. og John Lennon, meðan annar var dáldið eins og tja, hippi. Hann spurði okkur líka nokkrum sinnum hvort við gætum reddað honum meskalíni. Eftir nokkuð langt spjall við þessa meistara, þar sem við fengum tækifæri til að stæra okkur af reynslu í hinum harða heimi, ruddumst við inn til Ásgeirs sem býr þarna í næsta nágrenni og dextruðum hann til að skutla okkur. Oddur þakkaði fyrir sig með því að pissa á húsið hans. Þegar við mættum til Balla var partíið í fullum gangi og geysilegt stuð. Ég hitti nokkra gamla félaga: Brynjar (fyrrum porter - núverandi fjárhirðir), Þorgerði (fyrrum næstumþví kærasta - núverandi formaður listó) og Jónas (fyrrum bjölluhristir - núverandi formaður skemmtó), svo dæmi séu tekin. Þarna var drukkið og dansað og rætt um heima og geima. Ég átti langt spjall við Byssuna og át heilan kassa af jarðarberjum á meðan. Eitthvað virtist bróðir hans Balla vera ósáttur við keipdúnk, og gerði tilraunir til að henda mér og mínum vinum út eftir að allir aðrir voru farnir. Það lagðist ekki vel í okkur, við vildum heyra þetta frá Baldri sjálfum. Enda stungum við okkur í bæinn með foringjanum og flökkuðum milli staða þar til við enduðum sauðdrukknir á Celtic Cross eftir að hafa blekkt Danann og einhverja byttu til að bjóða okkur upp á tequila. Baldur fær props fyrir bjórinn. (Reyndar skuldaði hann mér fyrir Bombayið sem hann stal af mér í sumar, bastarðurinn sá...) Um fimmleytið hugðum við að heimleið. Ég heyrði á tal tveggja manna sem voru á leið í Fjörðinn. Ég stökk með á bankaði á gluggann hjá Svölu kl. hálfsex, henni til mikillar ánægju. Signý gisti hjá henni þessa nótt, en það sakaði ekki, við þrískiptum rúminu einfaldlega. Þegar ég vaknaði verkjaði mig óþægilega mikið í höfuðið. Ég skalf yfir kaffinu og meððí sem Jonní (mamma Svölu) hafði keypt og svitnaði. Ég lagaðist þó fljótt, og var þá kominn í gír fyrir kvöldið. Högni kíkti á mig til að sækja bjór, en það fór ekki betur en svo að við vorum farnir að búa til elektrónískt indí-rokk saman. Lofar vægast sagt góðu. Síðan ákváðum við að skella okkur á Bítlaball á NASA, ásamt Ragnheiði Sylvíu og Svölu. Það var ágætt. Bítlavinafélagið (sem lék fyrir dansi) hefði alveg mátt slaka aðeins á íslensku lögunum og fókusera bara á fjórmenningana frá Lifrarpolli. Samt gott gaman, og DeVitos á leiðinni heim var alveg að gera sig. Frekar góðar pizzur.:: miðvikudagur, október 22, 2003 :: Því er ekki að neita að þegar litið er yfir blogg síðustu vikna, jafnvel mánaða, þá sér maður strax að ekki er mikið í þau spunnið. Þau eru ósköp andlaus, einungis frásagnir af nýliðnum fylleríium. Back in the days bloggaði ég um hjartans málefni, heimspekilegar vangaveltur komu fyrir, spennandi frásagnir af daglegu amstri, stjórnmálaleg umræða og menningarleg. En ekki lengur. Ég gæti bloggað núna um nýliðna helgi, þar sem ég drakk Absinth, skipti á fánum, djammaði með hljómsveitinni TV on the Radio, stakk af leigubílstjóra gegn vilja mínum, fékk morðhótun, spilaði Drekktu betur, sá Prosaics, fyrrnefnda TVotR og Cpt. Comatose og undi mér vel; en það yrði bara enn önnur fyllleríissagan. Ekki svo að skilja að ég sé kom með leiða á djammi og slíku, ég er bara kominn með leiða á því að rita um það. Eða öllu heldur: ég held að fólki þyki ekkert svo gaman að lesa um það og geri það öðru fremur af gömlum vana. Mér finnst svosem alltílæ að eiga þetta sem minnisvarða um liðna tíð, en ég efast um gildi þess fyrir ykkur, kæru lesendur. Þess vegna spái ég lækkandi bloggtíðni, eða þá, sem væri náttla best: betra bloggi.:: fimmtudagur, október 16, 2003 :: Þá er vetrarfríið svokallaða gengið í garð. Ekki leiðinlegt. Ég á von á miklu sumbli og gamani næstu fjóra dagana. Nema daginn sem ég þarf að skrifa 6-8 síðna ljóðaritgerðina mína.:: þriðjudagur, október 14, 2003 :: RÚV sýnir teiknimyndaþáttaröðina Totally Spies á barnatíma. Ég varð fyrir því að sjá þennan þátt í gær. Þátturinn fjallar um tvær ofurheimskar stelpur frá Beverly Hills sem eru útsendarar einhverrar stofnunnar. Þær eru með stanslaus gelgjulæti og minna á Aliciu Silverstone í hinni ágætu mynd Clueless. Þetta er svosem allt í lagi (reyndar var þátturinn ótalsettur og með texta, sem oft á tíðum var nokkuð langur og flókinn), en illu öflin sem stelpurnar eru að berjast við eru vægast sagt skrítin. Andstæðingar hnattvæðingar, mótmælendur neyslu- og efnishyggju og fólk sem er á móti verslunarklösum og Kringlum. Þetta voru illu öflin í heiminum. Er það bara ég, en er ekki massífur bandarískur heilaþvottur þarna á ferð? Er eðlilegt að efnishyggja sé talin af hinu góðu og jafnvel nauðsynleg? Mér var tæplega skemmt.:: mánudagur, október 13, 2003 :: Tilnefndur er Bragi nokkur sem bloggstríðsmaður Íslands. Ég hef sjaldan séð mann lenda jafn illilega upp á kant við annað fólk í Netheimum, maðurinn er með þrjár kæruhótanir á bakinu á sér - þó maður viti að þær skríði aldrei upp úr hótunaregginu. En ótrúlegt samt hvað fólk getur tekið svona (að mér virðist) sakleysisleg bloggstríð nærri sér. Allt er nú til.:: miðvikudagur, október 08, 2003 :: Dáldið síðan seinast.:: fimmtudagur, október 02, 2003 :: Nú er það ekki gott blogg að vitna bara í Moggann og/eða önnur rit, en þó verð ég að vekja athygli á einkar góðum Velvakanda og Víkverja í dag.
|
|
![]()
:: gestir ::
![]() |