|
:: miðvikudagur, maí 31, 2006 ::
Og svo er það Reykjavík Trópík, við spilum á sunnudeginum.
Ferðasagan í smíðum.
:: Atli 22:46 [+] :: ::
...
:: sunnudagur, maí 14, 2006 ::
Úff og púff. Ég lauk prófunum 6. maí. Mér gekk almennt frekar vel, þó að lokaprófið í kvikmyndasögu hafi verið andskoti þungt og smásmugulegt. Ég byrjaði að vinna strax á mánudagsmorgninum 8. maí, en stoppaði stutt við, því Nortón fóru í upptöku fyrir Kastljósið éftir hádegi. Við tókum „Bankastræti nr. 0” og það gekk ágætlega, við hljómuðum bara nokkurnveginn einsog ég hélt að við hljómum. Þetta verður sent út í tengslum við Reykjavík Trópík, þ.e. fyrstu helgina í júní. Síðan lét ég klippa mig og nú skarta ég styttra hári en vanalega, og er sumarlegur eftir því.
Á afmælisdaginn óskuðu mér margir til hamingju og þeim er ég afskaplega þakklátur. Ég hélt síðan upp á afmælið í gærkvöldi með mikilli veislu að Bjarmalandi 4. Það var alveg rosalega skemmtilegt geim, sólin skein, grillið var heitt, og próflokafílingurinn sveif yfir vötnum. Hjaltalín léku, ásamt breytilegri slagverkssveit og trúbadornum knáa Helga Val. Mér voru færðar margar góðar gjafir, þrjú lærdómsrit og þrjár skáldsögur - sérstaklega var ég ánægður með If on a Winter's Night a Traveler eftir Italo Calvino. Ég fékk einar sjö vínsflöskur og best of disk með Serge Gainsbourg auk annarra gjafa (t.d. baðvigt - ég er 63 kg).
Á miðvikudaginn flýg ég til Cannes til að sækja kvikmyndahátíðina þar. Það verður væntanlega mjög skemmtilegt, og ég á ekki von á öðru en að ég og Tom Hanks verðum mestu mátar eftir ferðina. Ég verð í Cannes í ellefu daga, svo ég ætti að vera orðinn vel sólbrúnn og til í sumarið þegar ég kem aftur á klakann (sem hefur samt verið frekar heitur og eiturfeitur síðustu daga).
Þetta blogg er alltaðþví skrifað af skyldurækni, mér dettur ekkert sniðugt í hug til þess að segja núna. Ég er með færslu um notkun semíkommunnar í smíðum en hún verður að bíða betri tíma. Tékkið á Nortón MySpeisinu þangað til ég verð innblásnari.
Haldið ykkur heitum, njótið sumarsins, elskiði hvort annað og ekkert kjaftæði.
Ykkar einlægur, Atli Bollason.
:: Atli 20:01 [+] :: ::
...
|