|
:: fimmtudagur, maí 31, 2007 ::
 Jebb, þetta er ég í Cannes ásamt Hönnu Björk. Ég fékk semsagt stafræna myndavél í gjöf frá Svölu og tengdó í tilefni afmælis og tilvonandi útskriftar. Tékkið á fleiri Cannes-myndum hér.
:: Atli 17:47 [+] :: ::
...
Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 31.5.2007 | 05:30 Í góðu sambandi við efsta sætið
Bergur Ebbi Benediktsson [?] og félagar hans í Sprengjuhöllinni eiga vinsælasta lagið á Íslandi í dag. Ballaðan „Verum í sambandi" hefur skriðið hægt og rólega upp Lagalistann og er nú loks komið á toppinn.
Stúlkurnar í Nylon skipuðu efsta sætið í síðustu viku, en lag þeirra „Holiday" fellur um heil tólf sæti milli vikna og er nú í þrettánda sætinu. Skotarnir í Travis gefa hins vegar ekkert eftir og gera harða atlögu að efsta sætinu, en þeir sitja í öðru sætinu þessa vikuna með lagið „Closer".
:: Atli 13:31 [+] :: ::
...
:: mánudagur, maí 14, 2007 ::
Stórvirkið „Þú hefur heyrt þetta áður: Um póstmódernisma og pólitík í tónklippilist“ er komið áleiðis til skrifstofu hugvísindadeildar. 12.926 orð á 36 blaðsíðum um trylltan heim hljóðsýnanna. Þá sér fyrir endann á þessu - ég þarf að skila lokaritgerð í Svövu Jakobsdóttur á morgun, og svo held ég til Cannes á miðvikudaginn. Svo er bara feitasta útskriftarpartí allra tíma á 16. júní.
:: Atli 16:11 [+] :: ::
...
:: sunnudagur, maí 13, 2007 ::
Farinn að sofa. Aðalspá: Samfylking og sjálfstæðisflokkur (óháð því hvernig 32/31 deilist). Aukaspá: Samfylking, vinstri-grænir og... framsókn.
:: Atli 02:40 [+] :: ::
...
:: laugardagur, maí 12, 2007 ::
Það er kominn uggur (og ótti*) í stjórnina. Sigurður Kári og Geiri fara hamförum í gamaldags hræðsluáróðri: „Guð forði okkur frá vinstri stjórn,“ „Þeim er ekki treystandi“ o.s.frv. Þetta er McCarthyismi/Bushismi upp á sitt besta, alvöru kaldastríðs/hryðjuverkastríðs orðræða, og kannski - bara kannski - lýsandi fyrir íhaldssemina sem ræður lögum og lofum í þessum flokkum.
Þetta segir kannski allt sem segja þarf um paranoju hægrimanna. Hvers konar geðsjúklingur krefst herafla í því skyni að „verja lýðræðið og frelsið“? Stendur ekki herinn fyrir allt nema lýðræði og frelsi, þ.e. harðræði og kúgun? Steingrímur J./Ingibjörg Sólrún eru ekki sama og Stalín, sko, ekki frekar en H-ið í Geir H. Haarde stendur fyrir Hitler.
Ég kýs í öllu falli til vinstri, þó ekki nema væri til þess að prófa eitthvað annað - ég man ekki eftir stjórn án sjálfstæðisflokksins og væri til í að kynnast því, svona upp á samanburðinn. Ef það reynist svo vera sá dauði og djöfull sem goðsaga hægri manna gerir ráð fyrir (efnahagsmál fara alltaf í fokk þegar vinstrimenn ráða) þá kýs þjóðin bara aftur til hægri eftir fjögur ár og allt í góðu með það. Ég vona að fólk geti verið sammála mér í þessu. Fellum ríkisstjórnina, krakkar! Gaman gaman!
(Hér eru ótalin mistök núverandi ríkisstjórnar sem hafa verið tíunduð víða, sjálfum finnst mér Íraksstríðið vega þungt, og ef útreikningar sem gefa til kynna að skattbyrði hafi aukist á lægst launaðasta fólkið og lézt á hina tekjumeiri er það mjög alvarlegt mál. Þá er aðhald í samkeppni ekki neitt, raunar verð ég ekkert var við þessa svokölluðu samkeppni sem á að vera öllum til góða. Þetta er tíundað hér, og það verður nú að segjast að þetta vídeó er meira traustvekjandi heldur en hitt.)
*Uggur og ótti er eitt þekktasta rit danska heimspekingsins/skáldsins Sørens Kierkegaards og var hluti þess til prófs í hugmyndasögun 19. og 20. aldar í morgun, en ég vakti einmitt til kl. 5 við lestur í ljósi þess að nær allur tími minn hafði fram að þessu farið í lokaritgerðina.
:: Atli 11:06 [+] :: ::
...
:: fimmtudagur, maí 10, 2007 ::
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 6.25% Stuðningur við Framsóknarflokk: 20% Stuðningur við Samfylkinguna: 50% Stuðningur við Vinstri-Græna: 68.75% Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 23% Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%
Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs! Fyrst xhvad.bifrost.is segir það þá hlýtur það bara að vera þannig. (Fundið á Tobbblogg.)
:: Atli 21:52 [+] :: ::
...
Veröld/Fólk | Morgunblaðið | 10.5.2007 | 05:30 Nylon og Sprengjuhöllin mest spilaðar
Stúlkurnar í Nylon sitja aðra vikuna í röð á toppi Lagalistans með „Holiday" en þær hrintu strákunum í Take That þaðan í síðustu viku og sitja þeir nú í fjórtánda sæti með lag sitt „Patience". Sprengjuhöllin nær öðru sætinu með „Verum í sambandi" og önnur stuðsveit, Kaiser Chiefs, syngur um Ruby í því þriðja. Hvenær ætli Einar Bárða hringi og vilji fá okkur í hópinn með Nælon og Garðari Thór? Það meikar sens, Nælon taka krakkamarkaðinn og Garðar léttklassíkina/adult-contemporary, en hann vantar eitthvað meira eddsjí Q/NME dæmi fyrir 18 - 35 ára...
:: Atli 10:34 [+] :: ::
...
:: þriðjudagur, maí 08, 2007 ::
Æ æ, misstirðu af þættinum um Big Lebowski á Rás 1 fyrir viku síðan? Lítið mál, þú getur hlustað á hann hér eða endurflutninginn föstudaginn 11. maí kl. 21:25.
:: Atli 19:00 [+] :: ::
...
:: fimmtudagur, maí 03, 2007 ::
Ég er málhaltur.
Ég segi hengur í stað hangir. Ég segi spá í því en ekki það. Ég segi (einhverra hluta vegna) var í stað vör þótt konur eigi í hlut. Ég skrifa oft bróðir í aukaföllum í stað bróður. Ég þarf að hugsa um hvort leyti eða leiti eigi við hverju sinni.
Þá er það að mestu upptalið, held ég.
Svo átti ég afmæli í gær.
:: Atli 17:48 [+] :: ::
...
|