|
:: föstudagur, desember 04, 2009 ::
HUNDRAÐ* BESTU** PLÖTUR*** ÁRATUGARINS****
* Ég veit ekki hversu margar plötur sem hafa komið út undanfarinn áratug ég hef heyrt. Sexhundruð? Sjöhundruð? (iTunes segir 915, en það getur varla verið rétt.) Hér reyni ég alltént að tína til hundrað þeirra sem snertu í mér (einhverskonar) streng. Listinn er svo sterkur að plötur sem eru við botn listans eru algjörlega frábær verk, og það er sárt að geta ekki komið fleirum að. Líklega verður að draga mörkin einhvers staðar. Kannski að ég ráðist í gerð listans „Hundrað næstbestu plötur áratugarins“ við tækifæri.
** Þegar ég segi „bestu“ á ég við einhvers konar blöndu af „faglegu“ mati og „persónulegu“ mati, þ.e. annars vegar einhvers konar blöndu af því sem ég, í krafti þekkingar minnar, áhuga og innsæis, met sem listrænt og/eða sögulegt gildi viðkomandi plötu, og hins vegar þeirrar þýðingar sem hver plata hefur öðlast fyrir mig í ljósi þess samhengis sem ég hef hlustað á hana í, hvernig hún hafði áhrif á skilning minn á plötum sem á undan komu eða fylgdu í kjölfarið, hrein tilfinningaleg áhrif tónlistarinnar á mig og annað í svipuðum dúr. Líklega vegur hið síðarnefnda ögn, jafnvel talsvert, þyngra á þessum lista. Þá skal haft í huga að ég heyri fleiri plötur vikulega (gamlar og nýjar, hvorutveggja hefur áhrif á skilning minn) og einnig verða breytingar á persónu minni og aðstæðum sem verða klárlega til hrókeringa á sætum, en gætu einnig haft stórtækari breytingar. Til að mynda er árinu 2009 líklega ekki gerð nógu góð skil þar sem ég á enn eftir að heyra og/eða melta og bindast fjöldamörgum plötum sem komu út á því ári. Þá eru ótaldar plöturnar sem ekki eru enn komnar út. Þá skal einnig tekið fram að plötur þar sem ég kom sjálfur mjög nálægt flutningi tónlistarinnar teljast ekki með.
*** Plata er ekki óvéfengjanlegt hugtak og allra síst á tímum niðurhals. Með plötu á ég almennt við plötu „í fullri lengd“, sem þýðir yfirleitt yfir 30 mínútur. Ein plata sem kom til greina á þennan lista er engu að síður undir þeirri lengd og eflaust eru til EP-plötur sem eru lengri. Líklega er best að styðjast við skilgreiningu listamannsins sjálfs eða talsmanns hans. Þá tel ég bara með plötur sem komu út í föstu formi; á geisladiski eða vínylplötu. Um réttmæti þessa skilyrðis má deila en ég tel að fast form sé til vitnis um ákveðinn metnað og vilja til að plötunni sé tekið af alvöru og fjallað um hana sem slíka. Safnplötur, tónleikaplötur og endurútgáfur teljast ekki til „platna“ hér, skilyrðið er að um sé að ræða safn laga sem eru flutt í þessum búningi í fyrsta sinn af sama eða svipuðum hópi listamanna í öllum lögum.
**** Á enskum málsvæðum hefur skapast hefð fyrir því að áratugir hefjist í upphafi árs sem endar á núlli og ljúki við lok árs sem endar á níu. Þar sem popptónlist og skrif um hana er vettvangur sem sækir mikið í engilsaxneska hefð verður hér einnig miðað við árin 2000-2009. Oft er hins vegar erfitt að segja til um hvenær plötur „komu út.“ Ágætis byrjun Sigur Rósar kom t.d. út árið 1999 á Íslandi en ári síðar annars staðar í heiminum. Annað sérkennilegt dæmi er fyrsta plata múm, sem var til sölu á Þorláksmessu 1999 þótt árið 2000 sé prentað á umslaginu. Um þetta má eflaust ræða fram og aftur en eftirfarandi regla er í gildi hér: Íslenskar plötur teljast hafa komið út á því ári sem er tiltekið á umslagi íslenskrar útgáfu plötunnar. Plötur annars staðar að úr heiminum teljast hafa komið út á því ári sem þær komu út „á heimsvísu“ hafi þær á annað borð gert það. Ef um ræðir plötu sem hefur komið út á mjög litlu svæði en samt komið fyrir eyru mín þá gildir sama regla og um þær íslensku. Yfirleitt skiptir þetta litlu máli, nema í bláupphafi og við lok áratugarins.
100 Liars - Liars 99 Dungen - Ta Det Lugnt 98 The Futureheads - The Futureheads 97 Ulrich Schnauss - A Strangely Isolated Place 96 Max Tundra - Parallax Error Beheads You 95 Chromatics - IV 94 Peter Björn & John - Writer's Block 93 Phoenix - Wolfgang Amadeus Phoenix 92 Grizzly Bear - Yellow House 91 The Thrills - So Much for the City 90 Björk - Vespertine 89 The Knife - Silent Shout 88 LCD Soundsystem - LCD Soundsystem 87 Belle & Sebastian - Dear Catastrophe Waitress 86 Boards of Canada - Geogaddi 85 Mogwai - Happy Songs for Happy People 84 Radiohead - In Rainbows 83 Bon Iver - For Emma, Forever Ago 82 Luomo - Vocalcity 81 Girls - Album 80 Radiohead - Amnesiac 79 Belle & Sebastian - Fold Your Hands Child, You Walk Like a Peasant 78 Portishead - Third 77 Sonic Youth - Murray Street 76 Prefuse 73 - One Word Extinguisher 75 Animal Collective - Strawberry Jam 74 Suburban Kids With Biblical Names - #3 73 Sam Amidon - All Is Well 72 Tortoise - Standards 71 Architecture in Helsinki - Fingers Crossed 70 Islands - Return to the Sea 69 Isan - Lucky Cat 68 Interpol - Turn on the Bright Lights 67 The Rapture - Echoes 66 Broken Social Scene - You Forgot it in People 65 Madvillain - Madvillainy 64 Sigur Rós - ( ) 63 Junior Boys - So This Is Goodbye 62 Badly Drawn Boy - The Hour of Bewilderbeast 61 Dntel - Life is Full of Possibilities 60 múm - Yesterday Was Dramatic, Today is OK 59 Jens Lekman - Night Falls over Kortedala 58 Menomena - Friend and Foe 57 Wilco - Yankee Hotel Foxtrot 56 Vashti Bunyan - Lookaftering 55 Rúnk - Ghengi Dahls 54 Los Campesinos! - Hold on Now, Youngster... 53 Panda Bear - Young Prayer 52 Justice - Cross 51 Mammút - Karkari 50 The Books - Lemon of Pink 49 My Morning Jacket - Z 48 Fennesz - Venice 47 The Shins - Chutes Too Narrow 46 Yeah Yeah Yeahs - Fever to Tell 45 Joanna Newsom - The Milk-Eyed Mender 44 The Besnard Lakes - Are The Dark Horse 43 LCD Soundsystem - Sound of Silver 42 Tim Hecker - Harmony in Ultraviolet 41 Sufjan Stevens - Michigan 40 Animal Collective - Feels 39 Vampire Weekend - Vampire Weekend 38 The Thermals - The Body, The Blood, The Machine 37 Panda Bear - Person Pitch 36 Belle and Sebastian - The Life Pursuit 35 Super Furry Animals - Rings Around the World 34 Beck - Sea Change 33 Max Tundra - Mastered by Guy at the Exchange 32 WOMEN - WOMEN 31 Jens Lekman - Oh You're So Silent Jens 30 Air - Talkie Walkie 29 Fleet Foxes - Fleet Foxes 28 Stars of the Lid - And Their Refinement of the Decline 27 Hjaltalín - Sleepdrunk Seasons 26 Junior Boys - Last Exit 25 Air - 10.000 Hz Legend 24 Ólöf Arnalds - Við og við 23 PAS/CAL - I Was Raised on Matthew, Mark, Luke & Laura 22 Isolée - We Are Monster 21 Art Brut - Bang Bang Rock and Roll 20 Girl Talk - Night Ripper 19 The Clientele - God Save the Clientele 18 Deerhunter - Microcastle 17 The Field - From Here We Go Sublime 16 Dirty Projectors - Bitte Orca 15 The Avalanches - Since I Left You 14 Neon Indian - Psychic Chasms 13 Cut Copy - In Ghost Colours 12 Arcade Fire - Funeral 11 Mu - Afro Finger and Gel 10 Of Montreal - Hissing Fauna, Are You the Destroyer? 9 Franz Ferdinand - Franz Ferdinand 8 Bright Eyes - I'm Wide Awake, It's Morning 7 Daft Punk - Discovery 6 Radiohead - Kid A 5 Animal Collective - Sung Tongs 4 Ben Frost - Theory of Machines 3 The Strokes - Room on Fire 2 The Unicorns - Who Will Cut Our Hair When We're Gone? 1 The Strokes - Is This It
Skoðun mín er enn sú sama og fyrir fimm árum þegar ég réðst í gerð lista af svipaðri gerð. Það er eitthvað við rykið sem Strokes þyrluðu upp sem gerir hljómsveitina enn ómótstæðilega í mínum huga. Þótt tilgerð komi eflaust upp í huga margra þegar minnst er á Strokes þá er samt einhver hreinleiki yfir þeim; hrein ást á hefðbundnu kúli, rafmagnsgíturum og leðurjökkum, bjór, stórborgum, sætum stelpum; rokki. Þeim er skítsama. Casablancas nennir varla að syngja. Gítarsólóin eru ekki til að speisa út við eða sína fram á tækni eða hugkvæmni, þau eru melódíur til að syngja með, alveg eins og lögin sjálf: hnitmiðuð, svöl, grípandi – sígild. Meiraðsegja trommur og bassi fá að bregða sér í krókahlutverkið – hvernig er hægt að standast dansandi bassann í titillaginu eða furðunákvæmt bítið sem kynnir „Hard to Explain“ til leiks? Hljómurinn er nægilega hrár til að mynd af fimm strákum um tvítugt í bílskúr framkallist dauflega, nægilega fágaður til að maður nenni að setja plötuna á fóninn aftur og aftur. Og aftur og aftur. Dást svo að skammlausri myndinni á umslaginu og næfurþunnu letrinu áður en hún fær að rúlla einu sinni eða tvisvar enn.
Ég heyrði Is This It í fyrsta skipti fyrir rúmum átta árum og í hvert sinn sem hún nær eyrum minum minnist ég þess hvernig mér leið: Eftir að hafa hlustað þungur á brún á skrítna raftónlist og sístígandi síðrokk um árabil hugsaði ég, loks með bros á vör, „hvað er þetta eiginlega?“ Ég var ekki einn um að spyrja og skuggi Strokes er enn sterkur þótt ógreinilegur sé.

:: Atli 00:55 [+] :: ::
...
|